Category: Kosningar 2026

Höldum vegferðinni áfram

Posted on by Sævar Birgisson

14. maí, 2026

Kæri sveitungi.

Mosfellsbær er einstakur staður til að búa á og það eru mikil forréttindi að fá að taka þátt í að þróa og byggja samfélagið okkar áfram. Það sem stendur upp úr fyrir mér á síðustu árum er hversu sterkur vilji er meðal íbúa til að halda áfram að gera góðan bæ enn betri fyrir börnin okkar, fjölskyldurnar, eldra fólkið og alla sem búa hér í Mosfellsbæ.

Þegar við göngum til sveitarstjórnarkosninga þann 16. maí finnst mér mikilvægt að við horfum ekki bara á loforð um framtíðina heldur líka til þess sem hefur áunnist. Á síðasta kjörtímabili hefur verið unnið markvisst að því að bæta þjónustu og aðstöðu í bænum okkar. Nýr leikskóli og nýtt íþróttahús voru tekin í notkun. Hlégarður hefur fengið nýtt líf sem félagsheimili Mosfellinga og Brúarland hefur orðið mikilvæg miðstöð fyrir félagsstarf eldri borgara. Við höfum einnig lagt áherslu á að bæta leiksvæði, skólalóðir og aðstöðu til íþróttaiðkunar um allan bæ.

Börnin okkar og bætt þjónusta

Verkefnið Börnin okkar hefur sett stóran svip á kjörtímabilið. Þar höfum við lagt áherslu á að styrkja umhverfi barna og fjölskyldna og byggja upp samfélag þar sem börn fá tækifæri til að blómstra. Samhliða því höfum við lagt mikla áherslu á stafræna þróun og bætta þjónustu við íbúa. Á síðustu árum hafa verið innleidd um 40 stafræn verkefni í stjórnsýslu bæjarins og nýtt þjónustuver opnað í Kjarnanum með bættri aðstöðu fyrir bæjarbúa.

Þessi góða vinna hefur ekki farið fram hjá fólki. Mosfellsbær hlaut tilnefningu til Nýsköpunarverðlauna hins opinbera árið 2026 fyrir stafræna vegferð sveitarfélagsins og verkefnið Börnin okkar. Þá sýndi þjónustukönnun Gallup að 93% íbúa eru ánægð með Mosfellsbæ sem stað til að búa á, sem er besti árangur meðal sveitarfélaga í könnuninni. Það eru niðurstöður sem við getum öll verið stolt af.

Framtíð Mosó

Á næsta kjörtímabili viljum við meðal annars halda áfram uppbyggingu á Varmársvæðinu með stúku- og þjónustubyggingu, klára efstu hæð Brúarlands til að efla félagsstarf enn frekar og nýta aðra hæð Hlégarðs fyrir menningarstarfsemi. Þá viljum við halda áfram að þróa verkefnið Börnin okkar og bæta þjónustu bæjarins okkar enn frekar.

Ég trúi því að við séum á góðri leið og að með áframhaldandi ábyrgð, samvinnu og metnaði getum við gert Mosfellsbæ enn betri.

Ég vona að þú sjáir ástæðu til að halda þessari vegferð áfram með okkur.

Þetta snýst um Mosó – setjum X við B á kjördag.

Sævar Birgisson
Oddviti Framsóknar í Mosfellsbæ

Greinin var birt í Mosfellingi – 14. maí 2026

Tryggjum ungu fólki sæti við borðið

Posted on by Leifur Ingi Eysteinsson

14. maí, 2026

Ég er stoltur að vera í þriðja sæti á lista Framsóknar fyrir komandi kosningar í Mosfellsbæ því ég vil taka þátt í að móta framtíð bæjarins sem ég ólst upp í. Mosfellsbær hefur vaxið hratt á síðustu árum. Því er mikilvægt að nýjar raddir fái að heyrast, ekki síst raddir ungs fólks.

Ungt fólk til ábyrgðar

Það sem hefur heillað mig við Framsókn er að flokkurinn treystir ungu fólki til ábyrgðar. Ef ég næ kjöri gæti ég orðið fyrsti bæjarfulltrúinn í Mosfellsbæ undir þrítugu og þar með yngsti í sögunni. Það sýnir kannski best hversu lengi unga fólkið í bænum hefur verið án raddar í bæjarstjórninni.

Á síðustu árum hefur margt áunnist í Mosfellsbæ og þar hefur skipt máli að þora að taka erfiðar ákvarðanir til lengri tíma litið. Það var til dæmis umdeild ákvörðun að taka Hlégarð aftur inn í bæinn, þó auðvelt sé að segja í dag að það hafi verið augljóst skref. Sú ákvörðun hefur hins vegar styrkt menningar- og samfélagslífið í bænum.

Sama má segja um breytingarnar á Varmársvæðinu. Auðveldasta ákvörðunin hefði verið að halda frjálsíþróttabrautinni óbreyttri eins og hún var. Í staðinn var ákveðið að færa
hlaupabrautina, byggja 200 metra braut við hlið vallarins og undirbúa að færa stúkuna nær vellinum í næsta skrefi uppbyggingarinnar. Það voru stór skref sem hafa heppnast mjög vel og skapað mun betri upplifun og aðstöðu fyrir íþróttafólk og áhorfendur.

Þá hefur einnig verið fjárfest af krafti á Varmársvæðinu með nýjum aðalvelli, endurbættum gervigrasvöllum og bættri aðstöðu fyrir Aftureldingu.

Þar skiptir máli að hugsa til framtíðar og gera hlutina almennilega. Það borgar sig ekki alltaf að velja ódýrustu lausnina. Þegar byggt er upp fyrir samfélagið eigum við að horfa til gæða og endingar. Á Varmársvæðinu eigum við til dæmis að stefna hátt, fara í lausnir sem standast nútímakröfur og UEFA standard frekar en hálfkák.

Það sama á við um aðstöðu fyrir ungt fólk víða um bæinn. Nú stendur til að bæta
körfuboltavöllinn við Kvíslarskóla með plast undirlagi, þar sem upphaflega var farið í einfaldari og ódýrari lausn sem hefur nýst illa. Slík verkefni skipta máli því þau skapa fleiri tækifæri til hreyfingar, samveru og lýðheilsu fyrir börn og ungmenni.

Styrkjum samfélagið til framtíðar

Mosfellsbær þarf bæði reynslu og ný sjónarmið. Með því að treysta ungu fólki til ábyrgðar styrkjum við samfélagið til framtíðar. Kjósum Framsókn til þess að gefa ungu fólki sæti við borðið.

Leifur Ingi Eysteinsson
3. sæti á lista Framsóknar í Mosfellsbæ

Greinin var birt í Mosfellingi – 14. maí 2026

Virði en ekki byrði

Posted on by Halla Karen Kristjánsdóttir

14. maí, 2026

Þetta kjörtímabil hefur liðið ótrúlega hratt. Þegar ég lít til baka sé ég hversu mikið hefur áunnist og hversu mikið ég sjálf hef lært. Störfin í bæjarstjórn og bæjarráði hafa verið bæði gefandi og krefjandi – verkefnin oft flókin og ábyrgðin mikil. En á sama tíma hef ég fundið hvað það skiptir máli að vinna af heilindum, fagmennsku og í góðu samstarfi. Það hefur verið leiðarljós okkar í Framsókn.

Eitt af því sem ég er hvað stoltust af er hvernig við höfum byggt upp þjónustu við eldra fólk í Mosfellsbæ. Mér finnst mikilvægt að rödd þess heyrist, því reynsla og þekking eldra fólks er styrkur fyrir samfélagið.

Stórsókn í velferð á kjörtímabilinu

Félagsstarfið í Brúarlandi er frábært dæmi um þjónustuna. Þegar starfsemin var flutt þangað varð algjör viðsnúningur – þátttaka jókst um 40% og það er engin tilviljun.  Starfsfólkið þar er einstakt, hlýtt og skapandi og hefur byggt upp samverustað þar sem fólk hittist, hlær og lærir. Ég vil halda áfram að efla þetta samfélag og tel mikilvægt að þriðja hæð hússins verði einnig nýtt undir félagsstarf.

Famos á líka hrós skilið. Þau eru hjartað í menningu, hreyfingu og tómstundum eldra fólks í bænum og vinna af mikilli elju. Mosfellsbær styður þau með húsnæði og fjármagni, og það samstarf hefur skilað sér í fjölbreyttu og lifandi starfi.

Annað skemmtilegt og sjálfsprottið verkefni er Karlar í skúrum.  Þar fer fram verðmæt starfsemi fyrir karla á öllum aldri.

Eitt stærsta framfaraskref kjörtímabilsins var þátttaka í tilraunaverkefninu Gott að eldast. Með samþættingu heimaþjónustu og heimhjúkrunar sér nú einn aðili, Eir, um þjónustuna sem áður var á hendi fjögurra. Þetta hefur gert þjónustuna markvissari og auðveldara að bregðast hratt við þegar þörf er á. Þó ber Mosfellsbær áfram ábyrgð á gæðum þjónustunnar – og það er mikilvægt.

Við höfum líka fjölgað dagdvalarrýmum úr 9 í 35, sem er gríðarlega stórt skref. Það gerir okkur kleift að styðja mun fleiri einstaklinga og fjölskyldur þeirra. Þá hefur nýtt endurhæfingarteymi hafið störf sem og vitjar fólks heim til að efla sjálfstæði þess og sjálfsbjargargetu. Þetta eru úrræði sem skipta raunverulegu máli í daglegu lífi fólks.

Hrós og þakklæti

Það gleður mig að heyra að opinberir aðilar vísa til Mosfellsbæjar sem fyrirmyndar í þjónustu við eldri borgara. Það er staðfesting á því að við erum á réttri leið – og ég vil halda áfram á þeirri braut.

Fram undan vil ég sjá aukin kynslóðatengsl, því fjarlægðin milli kynslóða hefur aukist og einmanaleiki er raunverulegt vandamál. Eldra fólk á skilið samfélag sem styður það, hlustar og metur að verðleikum.  Ég trúi því að tæknilausnir, ný hugsun og áframhaldandi uppbygging geti gert Mosfellsbæ að enn betra aldursvænu samfélagi.

Framsókn vill halda áfram að byggja á þeim sterka grunni sem lagður hefur verið á kjörtímabilinu.

Í lokin vil ég að segja þetta: Ég hef unnið talsvert mikið með eldra fólki hér í Mosfellsbæ í gegnum tíðina og verð ævinlega þakklát fyrir allt það sem þau hafa kennt mér og mun lifa innra með mér út ævina. Aldur er svo sannarlega auðlind.

Halla Karen Kristánsdóttir formaður bæjarráðs og skipa 2. sætið á lista Framsóknar  

Greinin var birt í Mosfellingi – 14. maí 2026

Hugsum stórt og til framtíðar

Posted on by Halla Karen Kristjánsdóttir

24. apríl, 2026

Ég flutti í Mosfellsbæinn árið 1995, hef búið hér síðan og finnst eins og ég hafi búið hér alla tíð. Mín skoðun er að gott samfélag verði ekki til nema bæjarbúar taki þátt og hjálpi til og tel ég mig hafa lagt mitt fram við að búa til góðan bæjarbrag á þessum árum.

Ég steig stærra skref vorið 2022 þegar ég ákvað að bjóða mig fram til sveitarstjórnar með góðu fólki í Framsókn. Ég hef ákveðið að bjóða aftur fram krafta mína enda áhugi minn á að starfa fyrir bæinn okkar óbreyttur. Við Sævar Birgisson bæjarfulltrúi höfum þó skipt um sæti á listanum og hann tekið við oddvitasætinu. Við erum í þessu af hugsjón, fyrir samfélagið, og vinnum áfram saman af ábyrgð og fagmennsku. Við viljum halda áfram að efla gagnsæi, lýðræðisleg vinnubrögð og gott samstarf – alltaf með hagsmuni Mosfellsbæjar að leiðarljósi. Og já, ef við fáum keflið aftur eftir kosningar verður ráðning bæjarstjóra fagleg.

Ég er afar stolt af því sem við höfum áorkað á kjörtímabilinu. Mikilvægt er að meirihluti hvers tíma hugsi lengra en til fjögurra ára í senn. Sveitarfélag á að byggja upp með langtímahagsmuni að leiðarljósi og það höfum við gert.

Stafrænir innviðir, upplýsingaöryggi og innkaup

Við fórum í stórsókn í uppbyggingu stafrænna innviða og þjónustu og fjárfestum verulega í þeim. Um 40 verkefnum er þegar lokið og hafa þau bætt þjónustu, einfaldað ferla og sparað tíma. Fjöldi sveitarfélaga hefur kynnt sér nálgun Mosfellsbæjar. Þá höfum við styrkt upplýsingatækni, endurnýjað innviði með áherslu á öryggi og einfaldað innkaupaferla. Niðurstaðan er betri yfirsýn, bætt þjónusta og öruggara starfsumhverfi. Þetta skiptir máli – bæði fyrir íbúa og rekstur sveitarfélagsins.

LEDið og viðhaldið

Við erum að ljúka við að lýsa bæinn betur upp – götur, íþróttamannvirki og skólahúsnæði. Þegar hefur verið skipt út 1.400 af 3.000 lömpum, settir upp 50 rafmagnskassar og á þessu ári verður farið í stýribúnað götulýsingar.

Þetta er fjárfesting til framtíðar: minni orkunotkun, lægri rekstrarkostnaður og minni viðhaldsþörf. Það er auðveldara og kannski pólitískt klókara að velja sýnileg verkefni sem skila hrósi strax, en við völdum að ráðast í verkefni sem styrkja bæinn okkar til lengri tíma.

Við höfum einnig lagt mikla áherslu á viðhald eigna Mosfellsbæjar. Reglulegt og markvisst viðhald er skynsamleg fjárfesting sem minnkar hættuna á óvæntum og kostnaðarsömum verkefnum – sem við höfum því miður fengið að kynnast á kjörtímabilinu vegna skorts á viðhaldi í fortíðinni.

Mannauðurinn – hjarta samfélagsins

Ég get ekki lokið þessari grein án þess að tala um mannauðinn í bænum. Við höfum heldur betur fjárfest í honum með því að taka yfir reksturinn á félagsheimilinu okkar Hlégarði; flutningi félagsstarfs eldri borgara í Brúarland; styrkingu Bólsins og með áherslum okkar á Bókasafnið okkar og Listasalinn. Þá erum við líka nýbúin að undirrita samning um safn um sögu ullariðnaðarins í Álafosskvos. Með því erum við að varðveita og vekja athygli á sögu svæðisins og efla það sem áfangastað.

Ekkert sveitarfélag getur talist framúrskarandi nema það sinni mannauðnum vel sem þar býr. Mannauðurinn býr til þau félagslegu verðmæti sem gera bæ að samfélagi og ég er stolt af okkar þátttöku í því.

Halla Karen Kristjánsdóttir,
formaður bæjarráðs og skipar 2. sæti á lista Framsóknar.

Greinin var fyrst birt í Mosfellingi – 23. apríl 2026

Mosó módelið – skref í átt að betra jafnvægi

Posted on by Sandra Dís Bjarnadóttir

24. apríl, 2026

Á þessu kjörtímabili höfum við í Framsókn komið fram með Mosó módelið sem lausn við krefjandi starfsumhverfi í leikskólum sem hefur verið til staðar ekki bara í sveitarfélaginu okkar heldur líka á landsvísu. Módelið felur í sér að foreldrar skrá sérstaklega vistun barna síðdegis á föstudögum og yfir hátíðar. Með því er mönnun betur aðlöguð að raunverulegri þörf, sem gerir kleift að stytta vinnuviku starfsfólks leikskólanna. Það er áskorun að ná jafnvægi sem þjónar bæði börnum, foreldrum og starfsfólki.

Það er eðlilegt að nýjar leiðir mæti mót stöðu og að ekki gangi allt hnökralaust fyrir sig. Ég viðurkenni að í upphafi var ég efins um hvort það myndi virka fyrir okkur hjónin að sækja börnin klukkan 14 á föstudögum. Reynslan hefur sýnt mér annað.

Í dag finnst mér þetta fyrirkomulag hafa haft mjög jákvæð áhrif á fjölskylduna mína. Helgarnar byrja fyrr, og þegar líður á kvöldið á föstudögum þá höfum við þegar náð að verja meiri tíma saman en áður.

Ekki skerðing á þjónustu

Kjarni Mosó módelsins er þó sá að það er ekki verið að skerða þjónustu. Þjónustan er enn til staðar og leikskólarnir eru áfram opnir til klukkan 16 á föstudögum fyrir þá foreldra sem þurfa á þeirri þjónustu að halda. Foreldrar geta því áfram valið þann kost sem hentar þeirra aðstæðum. Fyrir þau börn sem þurfa að dvelja eftir klukkan 14 á föstudögum skapast rólegra umhverfi, þá er áreitið minna og færri börn á staðnum. Sem getur haft jákvæð áhrif á líðan þeirra.

Ég er sjálf tilbúin að sækja börnin mín klukkan 14 á föstudögum svo að starfsfólkið sem sinnir börnunum mínum geti nýtt sér styttingu vinnuvikunnar.

Ég hef oft heyrt frá foreldrum í öðrum sveitarfélögum að þau hafi þurft að hliðra til sinni vinnu vegna manneklu á þeirra leikskóla. Við höfum ekki þurft að takast á við slíkt. Ávinningurinn að mati okkar í Framsókn er skýr. Við leggjum áherslu á stöðugra starfsumhverfi til að minnka líkur á manneklu sem getur mögulega truflað starfsemi leikskólanna. Það má líka nefna að það hefur einnig dregið úr veikindadögum starfsfólks eftir að Mosó módelið var tekið upp. Sem bendir til betra starfsumhverfis.

Kjarninn í kerfinu

Kjarninn í kerfinu er að vinna með fólkinu, ekki gegn því. Kerfið tekur mið af raunverulegum þörfum bæði fjölskyldna og starfsfólks og leitast við að skapa jafnvægi sem nýtist öllum. Með því að bæta starfsskilyrði þeirra sem sinna börnunum daglega er verið að styrkja það umhverfi sem börnin alast upp í. Ég lít á þetta módel sem ekki aðeins lausn við starfsmannavanda heldur einnig sem kerfi sem bætir samveru og tengingu fjölskyldunnar í daglegu lífi. Þetta á ekki síst við um börnin okkar, sem eru grunnstoðir samfélagsins og framtíðarinnar.

Börnin hafa ekki síður þörf fyrir hvíld, ró og samveru eins og við fullorðna fólkið. Markmið okkar í Framsókn er skýrt, að efla líðan barna og skapa þeim betri aðstæður. Þegar starfsfólk býr við meiri stöðugleika og fjölskyldan fær aukið svigrúm til samveru, skilar það sér beint til barnanna. Þau upplifa meiri ró, stöðugleika og nærveru. Langir og þétt skipulagðir dagar í leikskóla geta verið krefjandi fyrir ung börn, og því skiptir máli að skapa jafnvægi og rými til hvíldar. Með því að stytta daginn, til dæmis einu sinni í viku, myndast meiri tími fyrir samveru fjölskyldunnar. Þetta snýst því ekki bara um skipulag eða rekstur, heldur um hvaða samfélagi við viljum búa í. Samfélag þar sem velferð barna, foreldra og starfsfólks fer saman er það samfélag sem Framsókn leggur áherslu á.

Sandra Dís Bjarnadóttir

6. sæti á lista Framsóknar

Greinin var fyrst birt í Mosfellingi – 23. apríl 2026

Lýðheilsa – lykill að betri lífsgæðum

Posted on by Sævar Birgisson

23. apríl, 2026

Lýðheilsa snýst um lífsgæði fólks á öllum aldri. Hún snýst um að skapa samfélag þar sem íbúar hafa raunveruleg tækifæri til að hreyfa sig, njóta útivistar og tileinka sér heilbrigðan lífsstíl sem styrkir bæði líkama og huga.

Alla tíð hef ég lagt mikla áherslu á heilbrigðan lífsstíl og íþróttir hafa skipað stóran sess í lífi mínu frá unga aldri. Ég trúi því að hreyfing og tækifæri til að stunda íþróttir við hæfi eigi að vera á allra færi, óháð efnahag eða aðstæðum. Ég er fyrrverandi afreksíþróttamaður í skíðagöngu og hef meðal annars keppt á Ólympíuleikum fyrir hönd Íslands. Ég hef einnig starfað við þjálfun og vinn í dag á vettvangi sem tengist útivist og hreyfingu. Í gegnum þessa reynslu hef ég séð hversu mikil áhrif regluleg hreyfing og gott aðgengi að aðstöðu hefur á heilsu og vellíðan fólks.

Það er sérstaklega mikilvægt að börn og ungmenni fái tækifæri til að stunda íþróttir og hreyfingu við sitt hæfi. Þar er ekki aðeins verið að leggja grunn að betri líkamlegri heilsu, heldur einnig að sterkari sjálfsmynd, betri andlegri líðan og góðum venjum sem geta fylgt fólki alla ævi. Við eigum að tryggja að þessi tækifæri séu aðgengileg öllum. Í Mosfellsbæ eru miklir möguleikar til staðar. Hér höfum við umhverfi sem býður upp á fjölbreytta hreyfingu og útivist, og mikilvægt er að halda áfram að byggja á þeim styrkleikum.

Gott stíganet, göngu- og hjólaleiðir, aðstaða til útiveru og gönguskíðaspor yfir veturinn þegar aðstæður leyfa skipta sköpum í daglegu lífi fólks. Einnig gefst tækifæri til að stunda fjölbreyttar íþróttagreinar utandyra, svo sem hlaup, hjólreiðar, skíðagöngu, hestaíþróttir og motocross, sem endurspeglar vel þann styrk sem felst í nánd við náttúruna. Sundlaugarnar gegna jafnframt lykilhlutverki og eru mikilvægur vettvangur fyrir heilsueflingu, endurheimt og samveru fyrir alla aldurshópa.

Uppbygging til framtíðar

Íþróttafélögin í Mosfellsbæ gegna afar mikilvægu hlutverki. Þar fer fram öflugt starf sem styrkir börn, ungmenni og fjölskyldur og skapar jákvætt samfélag. Það starf þarf áfram að styðja eins vel og kostur er, enda er það ein af undirstöðum góðrar lýðheilsu í bæjarfélaginu. Um leið þurfum við að horfa á lýðheilsu í víðara samhengi sem snýst einnig um daglega hreyfingu, gott nærumhverfi og að fólk á öllum æviskeiðum hafi raunhæf tækifæri til að lifa virku lífi.

Við í Framsókn viljum halda áfram að sinna vel aðstöðumálum tengdum íþróttum og vinna áfram að uppbyggingu, þar á meðal á Varmársvæðinu.

Áhersla á lýðheilsu er fjárfesting í betra samfélagi. Með því aukum við vellíðan, drögum úr heilsufarslegum áskorunum og styrkjum samfélagið í heild.

Eflum áfram lýðheilsu í Mosfellsbæ.

Sævar Birgisson
Bæjarfulltrúi og oddviti Framsóknar í Mosfellsbæ

Greinin var fyrst birt í Mosfellingi – 23. apríl 2026

Afhverju Framsókn?

Posted on by Elín Guðný Hlöðversdóttir

2. apríl, 2026

Ég heiti Elín Guðný Hlöðversdóttir og fæ þann heiður að skipa 4. sæti á lista Framsóknar í komandi sveitarstjórnarkosningum.

Í gegnum árin hef ég lagt mig fram um að vera virkur íbúi í Mosfellsbæ. Ég hef verið þátttakandi í foreldrafélögum leik- og grunnskóla barnanna minna frá því þau hófu sína skólagöngu árið 2015 og er enn, hef látið mig varða málefni Aftureldingar í gegnum íþróttaiðkun barnanna minna þar sem ég hef setið í stjórnum deilda innan íþróttafélagsins og einnig sinnt sjálfboðaliðastarfi.
Ég hef unnið með og í þágu íbúasamtaka Leirvogstungu frá árinu 2016 ásamt því að taka þátt í starfi Soroptimistaklúbbs Mosfellssveitar.
Þetta geri ég með ánægju og mikilli gleði því mér þykir gott og gaman að geta lagt mitt af mörkum.
Með þessa reynslu að baki tel ég komið að því að stíga næsta skref og bjóða fram krafta mína í komandi sveitarstjórnarkosningum.

Hver er Elín Guðný?

Ég er 39 ára gömul, gift og á tvö börn. Ég sleit barnsskónum í Grafarvoginum en flutti í Mosfellsbæ árið 2010. Hér höfum við fjölskyldan fest rætur og fundið samfélag þar sem okkur líður vel.
Ég er þeirrar gæfu aðnjótandi að starfa líka í Mosfellsbæ en ég vinn hjá fyrirtæki sem heitir LED skilti. Áður var ég í fjölda mörg ár í veitingageiranum og sú reynsla kenndi mér margt, meðal annars hvað samvinna er mikilvæg og hvað það er gott að geta unnið með breiðum hópi fólks.

Samfélagsþátttaka hefur verið mér hugleikin frá því ég flutti í Mosfellsbæ og ég hef lagt mig fram um að taka virkan þátt. Í gegnum þennan áhuga minn á samfélaginu hef ég fundið hvað það skiptir miklu máli að láta sig málin varða og hvað það er mikilvægt að vera reiðubúin að leggja hönd á plóg. Því saman byggjum við samfélagið okkar og það er mikilvægt að raddir okkar bæjarbúa heyrist.

Ástæðan fyrir því að ég vel að verja kröftum mínum með Framsókn byggir á minni eigin reynslu.
Í gegnum árin hef ég átt í samskiptum við bæinn vegna ýmissa málefna sem ég hef brunnið fyrir. Frá því að Framsókn komst í meirihluta hef ég fundið fyrir jákvæðum breytingum.
Síðustu 4 ár hefur verið hlustað og ekki bara hlustað, líka framkvæmt og það hefur svo sannarlega verið sýndur raunverulegur vilji til að gera vel fyrir íbúa Mosfellsbæjar.
Þó ekki sé hægt að verða við öllum óskum eða möguleiki á að ráðast í öll verkefnin í einu er tekið mark á því sem lagt er til, unnið úr því sem hægt er að gera og haldið uppi opnu samtali.
Það er sú nálgun sem ég vil standa fyrir.

Ég vil leggja áframhaldandi áherslu á opið samtal við íbúa og að ákvarðanir byggi á raunverulegum þörfum bæjarbúa.
Ég vil leggja mitt af mörkum til að Mosfellsbær verði áfram góður staður til að búa á.
Ég er vinnusöm og tilbúin að hlusta og leggja á mig vinnuna sem þarf til að láta verkin tala.

Elín Guðný Hlöðversdóttir
4. sæti á lista Framsóknar í Mosfellsbæ

Greinin var fyrst birt í Mosfellingi – 2. apríl 2026

Heima er best

Posted on by Leifur Ingi Eysteinsson

2. apríl, 2026

Eftir tveggja ára dvöl í Svíþjóð var í raun aldrei spurning hvert ég stefndi þegar ég pakkaði niður í töskurnar, ég ætlaði heim, aftur til Mosfellsbæjar.
Það hljómar einfalt þegar maður segir það svona, en það er ekki auðvelt að flytja erlendis. Maður skilur eftir vini, fjölskyldu og allt það sem maður er vanur að hafa í kringum sig. Allt í einu er maður kominn eitthvert annað þar sem allt er nýtt.

Fyrst er það spennandi. Nýtt umhverfi, nýtt fólk og nýtt tungumál. Ég lærði fullt á því að búa úti. En eftir smá tíma fer maður líka að taka eftir því sem vantar og þess sem maður saknar. Stundum þarf einfaldlega að fara í burtu til að sjá hversu gott maður hefur það.
Þess vegna hugsaði ég mig ekki tvisvar um þegar kom að því að flytja aftur til Íslands, að koma heim í Mosfellsbæ.
Að koma aftur með fersk augu er sérstök upplifun. Maður sér allt það sem vel er gert og finnur líka hversu mörg tækifæri eru til að gera enn betur. Eitt af því sem stendur upp úr fyrir mér er hversu mikilvægt er að halda áfram að efla rödd ungs fólks í því hvernig bærinn okkar þróast.

Á þessu kjörtímabili hefur Framsókn í Mosfellsbæ tekið mikilvæg skref í málefnum ungs fólks. Félagsmiðstöðin Bólið er opin allt árið um kring, aukin áhersla á forvarnir og lýðheilsu ungs fólks og íþrótta- og tómstundastarf hefur styrkst.
Frístundastyrkir hafa verið hækkaðir og bætt aðgengi fyrir ungt fólk að sálfræðiþjónustu og félagsráðgjöf. Afturelding heldur áfram að vaxa og þróast sem öflugt félag með aðgengi fyrir alla. Þetta eru raunveruleg framfaraskref sem skipta máli.
Einnig hefur verið lögð áhersla á að gera bæinn enn barnvænni. Opnunartími sundlauga hefur verið lengdur á virkum dögum, leikvöllum hefur fjölgað og skólalóðir verið endurbættar. Stuðningsúrræði við foreldra hafa verið efld í formi ráðgjafar og námskeiða.

Á sama tíma blasa við okkur verkefni sem skipta miklu máli á næstu árum.
Húsnæðismál eru þar ofarlega á baugi. Mosfellsbær hefur vaxið hratt undanfarin ár og sá vöxtur kallar á áframhaldandi uppbyggingu, bæði í innviðum og í tækifærum fyrir ungt fólk sem vill koma sér fyrir og byggja framtíð sína hér.

Það er líka annað sem skiptir máli, þó það sé erfiðara að mæla. Tilfinningin að rödd manns skipti máli. Að hlustað sé á sjónarmið ungs fólks og þau fái vægi í ákvarðanatöku. Sú tilfinning hefur mikið að segja um það hvort fólk velur að setjast hér að, taka þátt og leggja sitt af mörkum til samfélagsins.

Ég er stoltur af því trausti sem mér hefur verið sýnt með því að fá að skipa þriðja sæti á lista Framsóknar. Það er skýr viðurkenning á því að rödd ungs fólks skiptir máli og á að eiga sess við borðið.

Í komandi kosningum mun ég standa með ungu fólki í Mosfellsbæ og leggja áherslu á að rödd þeirra sé sterk. Ég er einn af ykkur og ég mun leggja mitt af mörkum til að bærinn haldi áfram að vaxa og vera góður valkostur fyrir ungt fók að búa og byggja sína framtíð. Tryggjum áfamhaldandi góða stjórnun bæjarins á næsta kjörtímabili og setjum X við B.

Leifur Ingi Eysteinsson
3. sæti á lista Framsóknarflokksins í Mosfellsbæ

Greinin var fyrst birt í Mosfellingi – 2. apríl 2026