Tag: Brúarland

Virði en ekki byrði

Posted on by Halla Karen Kristjánsdóttir

14. maí, 2026

Þetta kjörtímabil hefur liðið ótrúlega hratt. Þegar ég lít til baka sé ég hversu mikið hefur áunnist og hversu mikið ég sjálf hef lært. Störfin í bæjarstjórn og bæjarráði hafa verið bæði gefandi og krefjandi – verkefnin oft flókin og ábyrgðin mikil. En á sama tíma hef ég fundið hvað það skiptir máli að vinna af heilindum, fagmennsku og í góðu samstarfi. Það hefur verið leiðarljós okkar í Framsókn.

Eitt af því sem ég er hvað stoltust af er hvernig við höfum byggt upp þjónustu við eldra fólk í Mosfellsbæ. Mér finnst mikilvægt að rödd þess heyrist, því reynsla og þekking eldra fólks er styrkur fyrir samfélagið.

Stórsókn í velferð á kjörtímabilinu

Félagsstarfið í Brúarlandi er frábært dæmi um þjónustuna. Þegar starfsemin var flutt þangað varð algjör viðsnúningur – þátttaka jókst um 40% og það er engin tilviljun.  Starfsfólkið þar er einstakt, hlýtt og skapandi og hefur byggt upp samverustað þar sem fólk hittist, hlær og lærir. Ég vil halda áfram að efla þetta samfélag og tel mikilvægt að þriðja hæð hússins verði einnig nýtt undir félagsstarf.

Famos á líka hrós skilið. Þau eru hjartað í menningu, hreyfingu og tómstundum eldra fólks í bænum og vinna af mikilli elju. Mosfellsbær styður þau með húsnæði og fjármagni, og það samstarf hefur skilað sér í fjölbreyttu og lifandi starfi.

Annað skemmtilegt og sjálfsprottið verkefni er Karlar í skúrum.  Þar fer fram verðmæt starfsemi fyrir karla á öllum aldri.

Eitt stærsta framfaraskref kjörtímabilsins var þátttaka í tilraunaverkefninu Gott að eldast. Með samþættingu heimaþjónustu og heimhjúkrunar sér nú einn aðili, Eir, um þjónustuna sem áður var á hendi fjögurra. Þetta hefur gert þjónustuna markvissari og auðveldara að bregðast hratt við þegar þörf er á. Þó ber Mosfellsbær áfram ábyrgð á gæðum þjónustunnar – og það er mikilvægt.

Við höfum líka fjölgað dagdvalarrýmum úr 9 í 35, sem er gríðarlega stórt skref. Það gerir okkur kleift að styðja mun fleiri einstaklinga og fjölskyldur þeirra. Þá hefur nýtt endurhæfingarteymi hafið störf sem og vitjar fólks heim til að efla sjálfstæði þess og sjálfsbjargargetu. Þetta eru úrræði sem skipta raunverulegu máli í daglegu lífi fólks.

Hrós og þakklæti

Það gleður mig að heyra að opinberir aðilar vísa til Mosfellsbæjar sem fyrirmyndar í þjónustu við eldri borgara. Það er staðfesting á því að við erum á réttri leið – og ég vil halda áfram á þeirri braut.

Fram undan vil ég sjá aukin kynslóðatengsl, því fjarlægðin milli kynslóða hefur aukist og einmanaleiki er raunverulegt vandamál. Eldra fólk á skilið samfélag sem styður það, hlustar og metur að verðleikum.  Ég trúi því að tæknilausnir, ný hugsun og áframhaldandi uppbygging geti gert Mosfellsbæ að enn betra aldursvænu samfélagi.

Framsókn vill halda áfram að byggja á þeim sterka grunni sem lagður hefur verið á kjörtímabilinu.

Í lokin vil ég að segja þetta: Ég hef unnið talsvert mikið með eldra fólki hér í Mosfellsbæ í gegnum tíðina og verð ævinlega þakklát fyrir allt það sem þau hafa kennt mér og mun lifa innra með mér út ævina. Aldur er svo sannarlega auðlind.

Halla Karen Kristánsdóttir formaður bæjarráðs og skipa 2. sætið á lista Framsóknar  

Greinin var birt í Mosfellingi – 14. maí 2026

Hugsum stórt og til framtíðar

Posted on by Halla Karen Kristjánsdóttir

24. apríl, 2026

Ég flutti í Mosfellsbæinn árið 1995, hef búið hér síðan og finnst eins og ég hafi búið hér alla tíð. Mín skoðun er að gott samfélag verði ekki til nema bæjarbúar taki þátt og hjálpi til og tel ég mig hafa lagt mitt fram við að búa til góðan bæjarbrag á þessum árum.

Ég steig stærra skref vorið 2022 þegar ég ákvað að bjóða mig fram til sveitarstjórnar með góðu fólki í Framsókn. Ég hef ákveðið að bjóða aftur fram krafta mína enda áhugi minn á að starfa fyrir bæinn okkar óbreyttur. Við Sævar Birgisson bæjarfulltrúi höfum þó skipt um sæti á listanum og hann tekið við oddvitasætinu. Við erum í þessu af hugsjón, fyrir samfélagið, og vinnum áfram saman af ábyrgð og fagmennsku. Við viljum halda áfram að efla gagnsæi, lýðræðisleg vinnubrögð og gott samstarf – alltaf með hagsmuni Mosfellsbæjar að leiðarljósi. Og já, ef við fáum keflið aftur eftir kosningar verður ráðning bæjarstjóra fagleg.

Ég er afar stolt af því sem við höfum áorkað á kjörtímabilinu. Mikilvægt er að meirihluti hvers tíma hugsi lengra en til fjögurra ára í senn. Sveitarfélag á að byggja upp með langtímahagsmuni að leiðarljósi og það höfum við gert.

Stafrænir innviðir, upplýsingaöryggi og innkaup

Við fórum í stórsókn í uppbyggingu stafrænna innviða og þjónustu og fjárfestum verulega í þeim. Um 40 verkefnum er þegar lokið og hafa þau bætt þjónustu, einfaldað ferla og sparað tíma. Fjöldi sveitarfélaga hefur kynnt sér nálgun Mosfellsbæjar. Þá höfum við styrkt upplýsingatækni, endurnýjað innviði með áherslu á öryggi og einfaldað innkaupaferla. Niðurstaðan er betri yfirsýn, bætt þjónusta og öruggara starfsumhverfi. Þetta skiptir máli – bæði fyrir íbúa og rekstur sveitarfélagsins.

LEDið og viðhaldið

Við erum að ljúka við að lýsa bæinn betur upp – götur, íþróttamannvirki og skólahúsnæði. Þegar hefur verið skipt út 1.400 af 3.000 lömpum, settir upp 50 rafmagnskassar og á þessu ári verður farið í stýribúnað götulýsingar.

Þetta er fjárfesting til framtíðar: minni orkunotkun, lægri rekstrarkostnaður og minni viðhaldsþörf. Það er auðveldara og kannski pólitískt klókara að velja sýnileg verkefni sem skila hrósi strax, en við völdum að ráðast í verkefni sem styrkja bæinn okkar til lengri tíma.

Við höfum einnig lagt mikla áherslu á viðhald eigna Mosfellsbæjar. Reglulegt og markvisst viðhald er skynsamleg fjárfesting sem minnkar hættuna á óvæntum og kostnaðarsömum verkefnum – sem við höfum því miður fengið að kynnast á kjörtímabilinu vegna skorts á viðhaldi í fortíðinni.

Mannauðurinn – hjarta samfélagsins

Ég get ekki lokið þessari grein án þess að tala um mannauðinn í bænum. Við höfum heldur betur fjárfest í honum með því að taka yfir reksturinn á félagsheimilinu okkar Hlégarði; flutningi félagsstarfs eldri borgara í Brúarland; styrkingu Bólsins og með áherslum okkar á Bókasafnið okkar og Listasalinn. Þá erum við líka nýbúin að undirrita samning um safn um sögu ullariðnaðarins í Álafosskvos. Með því erum við að varðveita og vekja athygli á sögu svæðisins og efla það sem áfangastað.

Ekkert sveitarfélag getur talist framúrskarandi nema það sinni mannauðnum vel sem þar býr. Mannauðurinn býr til þau félagslegu verðmæti sem gera bæ að samfélagi og ég er stolt af okkar þátttöku í því.

Halla Karen Kristjánsdóttir,
formaður bæjarráðs og skipar 2. sæti á lista Framsóknar.

Greinin var fyrst birt í Mosfellingi – 23. apríl 2026