Author: Sævar Birgisson

Höldum vegferðinni áfram

Posted on by Sævar Birgisson

14. maí, 2026

Kæri sveitungi.

Mosfellsbær er einstakur staður til að búa á og það eru mikil forréttindi að fá að taka þátt í að þróa og byggja samfélagið okkar áfram. Það sem stendur upp úr fyrir mér á síðustu árum er hversu sterkur vilji er meðal íbúa til að halda áfram að gera góðan bæ enn betri fyrir börnin okkar, fjölskyldurnar, eldra fólkið og alla sem búa hér í Mosfellsbæ.

Þegar við göngum til sveitarstjórnarkosninga þann 16. maí finnst mér mikilvægt að við horfum ekki bara á loforð um framtíðina heldur líka til þess sem hefur áunnist. Á síðasta kjörtímabili hefur verið unnið markvisst að því að bæta þjónustu og aðstöðu í bænum okkar. Nýr leikskóli og nýtt íþróttahús voru tekin í notkun. Hlégarður hefur fengið nýtt líf sem félagsheimili Mosfellinga og Brúarland hefur orðið mikilvæg miðstöð fyrir félagsstarf eldri borgara. Við höfum einnig lagt áherslu á að bæta leiksvæði, skólalóðir og aðstöðu til íþróttaiðkunar um allan bæ.

Börnin okkar og bætt þjónusta

Verkefnið Börnin okkar hefur sett stóran svip á kjörtímabilið. Þar höfum við lagt áherslu á að styrkja umhverfi barna og fjölskyldna og byggja upp samfélag þar sem börn fá tækifæri til að blómstra. Samhliða því höfum við lagt mikla áherslu á stafræna þróun og bætta þjónustu við íbúa. Á síðustu árum hafa verið innleidd um 40 stafræn verkefni í stjórnsýslu bæjarins og nýtt þjónustuver opnað í Kjarnanum með bættri aðstöðu fyrir bæjarbúa.

Þessi góða vinna hefur ekki farið fram hjá fólki. Mosfellsbær hlaut tilnefningu til Nýsköpunarverðlauna hins opinbera árið 2026 fyrir stafræna vegferð sveitarfélagsins og verkefnið Börnin okkar. Þá sýndi þjónustukönnun Gallup að 93% íbúa eru ánægð með Mosfellsbæ sem stað til að búa á, sem er besti árangur meðal sveitarfélaga í könnuninni. Það eru niðurstöður sem við getum öll verið stolt af.

Framtíð Mosó

Á næsta kjörtímabili viljum við meðal annars halda áfram uppbyggingu á Varmársvæðinu með stúku- og þjónustubyggingu, klára efstu hæð Brúarlands til að efla félagsstarf enn frekar og nýta aðra hæð Hlégarðs fyrir menningarstarfsemi. Þá viljum við halda áfram að þróa verkefnið Börnin okkar og bæta þjónustu bæjarins okkar enn frekar.

Ég trúi því að við séum á góðri leið og að með áframhaldandi ábyrgð, samvinnu og metnaði getum við gert Mosfellsbæ enn betri.

Ég vona að þú sjáir ástæðu til að halda þessari vegferð áfram með okkur.

Þetta snýst um Mosó – setjum X við B á kjördag.

Sævar Birgisson
Oddviti Framsóknar í Mosfellsbæ

Greinin var birt í Mosfellingi – 14. maí 2026

Lýðheilsa – lykill að betri lífsgæðum

Posted on by Sævar Birgisson

23. apríl, 2026

Lýðheilsa snýst um lífsgæði fólks á öllum aldri. Hún snýst um að skapa samfélag þar sem íbúar hafa raunveruleg tækifæri til að hreyfa sig, njóta útivistar og tileinka sér heilbrigðan lífsstíl sem styrkir bæði líkama og huga.

Alla tíð hef ég lagt mikla áherslu á heilbrigðan lífsstíl og íþróttir hafa skipað stóran sess í lífi mínu frá unga aldri. Ég trúi því að hreyfing og tækifæri til að stunda íþróttir við hæfi eigi að vera á allra færi, óháð efnahag eða aðstæðum. Ég er fyrrverandi afreksíþróttamaður í skíðagöngu og hef meðal annars keppt á Ólympíuleikum fyrir hönd Íslands. Ég hef einnig starfað við þjálfun og vinn í dag á vettvangi sem tengist útivist og hreyfingu. Í gegnum þessa reynslu hef ég séð hversu mikil áhrif regluleg hreyfing og gott aðgengi að aðstöðu hefur á heilsu og vellíðan fólks.

Það er sérstaklega mikilvægt að börn og ungmenni fái tækifæri til að stunda íþróttir og hreyfingu við sitt hæfi. Þar er ekki aðeins verið að leggja grunn að betri líkamlegri heilsu, heldur einnig að sterkari sjálfsmynd, betri andlegri líðan og góðum venjum sem geta fylgt fólki alla ævi. Við eigum að tryggja að þessi tækifæri séu aðgengileg öllum. Í Mosfellsbæ eru miklir möguleikar til staðar. Hér höfum við umhverfi sem býður upp á fjölbreytta hreyfingu og útivist, og mikilvægt er að halda áfram að byggja á þeim styrkleikum.

Gott stíganet, göngu- og hjólaleiðir, aðstaða til útiveru og gönguskíðaspor yfir veturinn þegar aðstæður leyfa skipta sköpum í daglegu lífi fólks. Einnig gefst tækifæri til að stunda fjölbreyttar íþróttagreinar utandyra, svo sem hlaup, hjólreiðar, skíðagöngu, hestaíþróttir og motocross, sem endurspeglar vel þann styrk sem felst í nánd við náttúruna. Sundlaugarnar gegna jafnframt lykilhlutverki og eru mikilvægur vettvangur fyrir heilsueflingu, endurheimt og samveru fyrir alla aldurshópa.

Uppbygging til framtíðar

Íþróttafélögin í Mosfellsbæ gegna afar mikilvægu hlutverki. Þar fer fram öflugt starf sem styrkir börn, ungmenni og fjölskyldur og skapar jákvætt samfélag. Það starf þarf áfram að styðja eins vel og kostur er, enda er það ein af undirstöðum góðrar lýðheilsu í bæjarfélaginu. Um leið þurfum við að horfa á lýðheilsu í víðara samhengi sem snýst einnig um daglega hreyfingu, gott nærumhverfi og að fólk á öllum æviskeiðum hafi raunhæf tækifæri til að lifa virku lífi.

Við í Framsókn viljum halda áfram að sinna vel aðstöðumálum tengdum íþróttum og vinna áfram að uppbyggingu, þar á meðal á Varmársvæðinu.

Áhersla á lýðheilsu er fjárfesting í betra samfélagi. Með því aukum við vellíðan, drögum úr heilsufarslegum áskorunum og styrkjum samfélagið í heild.

Eflum áfram lýðheilsu í Mosfellsbæ.

Sævar Birgisson
Bæjarfulltrúi og oddviti Framsóknar í Mosfellsbæ

Greinin var fyrst birt í Mosfellingi – 23. apríl 2026

Við viljum bara það besta fyrir börnin okkar

Posted on by Sævar Birgisson

Fyrsta skólastig, eða leikskólar, er einhver mikilvægasta þjónusta sem sveitarfélög veita. Í Mosfellsbæ er heimilt að sækja um leikskólavist fyrir börn frá 12 mánaða aldri. Gott og vel. Það sem er mikilvægast í umsóknarferlinu er að óvissu um hvenær og hvar barnið fái leikskólapláss sé eytt eftir fremsta megni.

Það er nógu stórt verkefni fyrir nýbakaða foreldra að sinna uppeldinu, án þess að þurfa að bæta öðrum áhyggjum ofan á það. Vissulega hafa verið ákveðnir vaxtarverkir í takti við vaxandi íbúafjölda í sveitarfélaginu og því krefjandi verkefni að mæta aukinni þörf í þessum málum. Ekki er hægt að verða við öllum óskum um tiltekinn skóla og getur fæðingarmánuður barns haft mikið að segja í þeim efnum. Aðalatriðið er að við veitum foreldrum hugarró. Við í Framsókn Mosfellsbæ viljum að þjónustan við börn sé veitt um leið og fæðingarorlofi foreldra lýkur, það þarf að sjá til þess að bilið sé brúað.
Það er gríðarlega krefjandi starf að vera starfsmaður á leikskóla og mikil ábyrgð sem felst í því að sjá um börnin okkar á þessum mest mótandi tíma á þeirra ævi. Við sem foreldrar gerum ríkar kröfur á leikskólastarfið, alveg eins og starfsfólkið gerir kröfur á okkur sem foreldra. Það þarf að sjá til þess að búið sé þannig um að við sem sveitarfélag séum einmitt að veita bestu þjónustu sem völ er á, framúrskarandi þjónustu. Hærra hlutfall fagmenntaðra leikskólakennara er stór þáttur í því að efla góða þjónustu enn frekar. Sem dæmi má nefna að ófaglærðir starfsmenn leikskóla eru oft á tíðum einstaklingar sem vilja sækja sér menntunina en vantar hvatningu til að taka skrefið.
Við hjá Framsókn viljum beita okkur fyrir því að efla það mikilvæga starf sem unnið er í leikskólum sveitarfélagsins, meðal annars með því að mæta því frábæra fólki sem þar starfar og auðvelda því að sækja sér viðeigandi menntun til að styrkja stöðu sína. Eru fjölmargar leiðir færar í þeim efnum. Á sama tíma erum við að bæta þjónustuna og gera vinnustaðina enn eftirsóknarverðari.

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, hefur unnið mjög gott starf fyrir farsæld barna og fjölskyldna í landinu. Mikið framfaraskref var stigið þegar Alþingi samþykkti frumvarp til nýrra laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Þau ganga út á að tryggja aukna samvinnu og samfellu í þjónustu við börn, eitthvað sem mikilvægt er að verði innleitt sem fyrst. Hér í Mosfellsbæ eigum við að vera framúrskarandi þegar kemur að málefnum barna, því við viljum bara það besta fyrir börnin okkar.

Setjum málefni barna í forgang og merkjum X við B á kjördag.
Höfundur er faðir tveggja barna á leikskólaaldri.

Sævar Birgisson
3. sæti á lista Framsóknar í Mosfellsbæ

Tökum samtalið

Posted on by Sævar Birgisson

Sem íbúar í bæjarfélagi þá höfum við öll skoðanir á einhverjum málefnum er varða bæinn okkar. Hvort sem það tengist skipulaginu á nýjum stíg í hverfinu eða útdeilingu á leikskólaplássi fyrir barnið þitt. Ef þú sem íbúi hefur skoðun sem þú telur að geti komið að gagni þá skaltu láta í þér heyra. Eins frá sjónarhóli þess frábæra fólks sem starfa hjá sveitarfélaginu og sinna daglegri starfsemi í bænum okkar má gera ráð fyrir að þau hafi skoðanir á ýmsu sem hægt væri að gera betur. Það sama gildir um aðra hagsmunaaðila sem sjá tækifæri til úrbóta. Látið rödd ykkar heyrast.

Við viljum að á okkur sé hlustað og að við upplifum okkur sem mikilvæg. Við búum öll saman í bæjarfélaginu og viljum auðvitað að okkur og öðrum íbúum líði vel og allir þrífist eins og best verður á kosið. Við þurfum að eiga samskipti og stuðla að því að þau séu uppbyggileg og jákvæð og til þess fallin að gera bæinn okkar að enn betri stað til að búa á.

Þegar kemur að góðri stjórnun, samstarfi og samvinnu almennt eru markviss og uppbyggileg samskipti lykilatriði. Í sumum málum getur það beinlínis hamlað framþróun að hunsa eða leitast ekki eftir skoðunum hagsmunaaðila. það getur oft á tíðum fært mál í verri farveg og jafnvel sett þau aftur á byrjunarreit. Það er til að mynda ekki skynsamleg ákvörðun að leggja hjólastíg og reiðstíg hlið við hlið, það er ekkert sjálfsagt mál að allir sjái vandamálið við það en þeir sem stunda hestamennsku væru fljótir að benda á það væri ekki ákjósanlegt.

Bæjarfulltrúar starfa jú í umboði kjósenda, sem eru íbúar bæjarins. Þeim ber því skylda til að vinna ætíð með hagsmuni íbúa að leiðarjósi. Til þess að það geti gengið sem best þurfum við að vera dugleg að taka samtalið.

Sævar Birgisson
3. sæti á lista Framsóknar í Mosfellsbæ

Greinin birtist fyrst í Mosfellingi 7. apríl 2022.