Framboðslistinn

Hluti þeirra sem skipa lista Framsóknar.í Mosfellsbæ fyrir kosningarnar þann 16. maí 2026

Á félagsfundi fimmtudaginn 26. febrúar var
samþykkt tillaga að framboðslista Framsóknar í Mosfellsbæ fyrir sveitarstjórnarkosningarnar þann 16. maí, uppstillingarnefnd hefur unnið að mótun listans frá því í nóvember.  Sævar Birgisson, viðskiptafræðingur og bæjarfulltrúi, leiðir listann.  Annað sæti skipar Halla Karen Kristjánsdóttir, íþróttakennari og formaður bæjarráðs, í þriðja sæti er Leifur Ingi Eysteinsson tómstunda og félagsmálafræðingur og í því fjórða er Elín Guðný Hlöðversdóttir rekstrarstjóri.

Framsókn á fjóra bæjarfulltrúa í dag og er í meirihlutasamstarfi með Samfylkingunni og Viðreisn.  Halla Karen hefur leitt listann síðustu fjögur ár en nú tekur Sævar Birgisson við keflinu, en hann skipaði áður þriðja sæti listans.

 

Lýðheilsa og ábyrgur rekstur áfram í fyrirrúmi

„Við mætum til leiks með fjölbreyttan hóp af öflugu fólki sem brennur fyrir málefni Mosfellsbæjar. Sem fyrr
verður gleðin áfram í fyrirrúmi hjá okkur, en rauði þráðurinn í okkar áherslum er áfram lýðheilsa, virkt samtal
við íbúa bæjarins og ábyrgur rekstur. Við teljum okkur hafa skilað góðu verki á yfirstandandi kjörtímabili og
horfum að sjálfsögðu bjartsýn fram á veginn og viljum halda áfram að vinna gott starf fyrir Mosfellsbæ,“ segir
Sævar. Halla Karen bætir við að í Mosfellsbæ hafi verið lögð áhersla á vandaða og persónulega þjónustu, öflugt
skóla- og velferðarstarf, blómlegt íþrótta- og menningarlíf, trausta innviði og markviss skipulags- og umhverfismál. Sérstök áhersla hafi verið á málefni barna og ungmenna, fjölskyldna þeirra og eldra fólks, með velferð,
forvarnir og lýðheilsu að leiðarljósi. „Við höfum sinnt hlutverki okkar af ábyrgð og fagmennsku,“ segir Halla.

Framboðslisti Framsóknar í Mosfellsbæ fyrir sveitarstjórnarkosningar 16. maí 2026 er þannig

skipaður:

 

1. Sævar Birgisson, viðskiptafræðingur og bæjarfulltrúi
2. Halla Karen Kristjánsdóttir, íþróttakennari og formaður bæjarráðs
3. Leifur Ingi Eysteinsson, tómstunda- og félagsmálafræðingur
4. Elín Guðný Hlöðversdóttir, rekstrarstjóri
5. Ýmir Örn Hafsteinsson, álversstarfsmaður
6. Sandra Dís Bjarnadóttir, ráðgjafi og verkefnastjóri
7. Kjartan Helgi Ólafsson, stjórnmálafræðingur
8. Matthildur Þórðardóttir, kennari og stjórnmálafræðingur
9. Frímann Ægir Frímannsson, merkismaður
10. Bjarni Ingimarsson, slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður
11. Vala Garðarsdóttir, fornleifafræðingur
12. Hansína Þorbjörg Sólbjartsdóttir, kennari og varabæjarfulltrúi
13. Helga Einarsdóttir, hjúkrunarfræðingur
14. Ragnar Sverrisson, matreiðslumeistari og framkvæmdastjóri
15. Sigurbjörg Kristmundsdóttir, viðskiptafræðingur og sjúkraliði
16. Karlotta Lind Pedersen, framkvæmdastjóri og hársnyrtir
17. Sigríður Dóra Sigtryggsdóttir, hjúkrunarfræðingur og varabæjarfulltrúi
18. Þór Gíslason, ráðgjafi
19. Erlingur Agnarsson, viðskiptafræðingur
20. Páll Marís Pálsson, lögfræðingur
21. Ævar Sigdórsson, vélstjóri
22. Örvar Jóhannsson, rafvirki og forseti bæjarstjórnar