14. maí, 2026
Þetta kjörtímabil hefur liðið ótrúlega hratt. Þegar ég lít til baka sé ég hversu mikið hefur áunnist og hversu mikið ég sjálf hef lært. Störfin í bæjarstjórn og bæjarráði hafa verið bæði gefandi og krefjandi – verkefnin oft flókin og ábyrgðin mikil. En á sama tíma hef ég fundið hvað það skiptir máli að vinna af heilindum, fagmennsku og í góðu samstarfi. Það hefur verið leiðarljós okkar í Framsókn.
Eitt af því sem ég er hvað stoltust af er hvernig við höfum byggt upp þjónustu við eldra fólk í Mosfellsbæ. Mér finnst mikilvægt að rödd þess heyrist, því reynsla og þekking eldra fólks er styrkur fyrir samfélagið.
Stórsókn í velferð á kjörtímabilinu
Félagsstarfið í Brúarlandi er frábært dæmi um þjónustuna. Þegar starfsemin var flutt þangað varð algjör viðsnúningur – þátttaka jókst um 40% og það er engin tilviljun. Starfsfólkið þar er einstakt, hlýtt og skapandi og hefur byggt upp samverustað þar sem fólk hittist, hlær og lærir. Ég vil halda áfram að efla þetta samfélag og tel mikilvægt að þriðja hæð hússins verði einnig nýtt undir félagsstarf.
Famos á líka hrós skilið. Þau eru hjartað í menningu, hreyfingu og tómstundum eldra fólks í bænum og vinna af mikilli elju. Mosfellsbær styður þau með húsnæði og fjármagni, og það samstarf hefur skilað sér í fjölbreyttu og lifandi starfi.
Annað skemmtilegt og sjálfsprottið verkefni er Karlar í skúrum. Þar fer fram verðmæt starfsemi fyrir karla á öllum aldri.
Eitt stærsta framfaraskref kjörtímabilsins var þátttaka í tilraunaverkefninu Gott að eldast. Með samþættingu heimaþjónustu og heimhjúkrunar sér nú einn aðili, Eir, um þjónustuna sem áður var á hendi fjögurra. Þetta hefur gert þjónustuna markvissari og auðveldara að bregðast hratt við þegar þörf er á. Þó ber Mosfellsbær áfram ábyrgð á gæðum þjónustunnar – og það er mikilvægt.
Við höfum líka fjölgað dagdvalarrýmum úr 9 í 35, sem er gríðarlega stórt skref. Það gerir okkur kleift að styðja mun fleiri einstaklinga og fjölskyldur þeirra. Þá hefur nýtt endurhæfingarteymi hafið störf sem og vitjar fólks heim til að efla sjálfstæði þess og sjálfsbjargargetu. Þetta eru úrræði sem skipta raunverulegu máli í daglegu lífi fólks.
Hrós og þakklæti
Það gleður mig að heyra að opinberir aðilar vísa til Mosfellsbæjar sem fyrirmyndar í þjónustu við eldri borgara. Það er staðfesting á því að við erum á réttri leið – og ég vil halda áfram á þeirri braut.
Fram undan vil ég sjá aukin kynslóðatengsl, því fjarlægðin milli kynslóða hefur aukist og einmanaleiki er raunverulegt vandamál. Eldra fólk á skilið samfélag sem styður það, hlustar og metur að verðleikum. Ég trúi því að tæknilausnir, ný hugsun og áframhaldandi uppbygging geti gert Mosfellsbæ að enn betra aldursvænu samfélagi.
Framsókn vill halda áfram að byggja á þeim sterka grunni sem lagður hefur verið á kjörtímabilinu.
Í lokin vil ég að segja þetta: Ég hef unnið talsvert mikið með eldra fólki hér í Mosfellsbæ í gegnum tíðina og verð ævinlega þakklát fyrir allt það sem þau hafa kennt mér og mun lifa innra með mér út ævina. Aldur er svo sannarlega auðlind.
Halla Karen Kristánsdóttir formaður bæjarráðs og skipa 2. sætið á lista Framsóknar
Greinin var birt í Mosfellingi – 14. maí 2026